Algeng Meiðsli
Nári: Ef þú meiðist í nára er mikilvægt að hætta um leið og þú finnur fyrir einhverjum sársauka til að minnka hættuna á að rífa vöðvann algjörlega. Síðan er gott að kæla vöðvann og setja sárabindi yfir sárið svo að það bólgnar ekki. Síðan er gott að byrja á því að teygja vöðvann rólega og fá þannig hreyfigetuna aftur smám saman og síðan eftir viku ef að verkurinn er farinn getur þú byrjað að æfa rólega aftur en ef þú finnur fyrir verkjum á að hætta strax.
Til að draga úr meiðslum í nára er sniðugt að hita þig alltaf upp með því að hlaupa eða bara eitthvað sem hækkar líkamshitann. ef þú hefur meiðst áður er sniðugt að reyna að styrkja vöðvana í kring en ekki gera meira en 10% aukningu á erfiðleikann á viku. Ef þú færð verki ættir þú að hætta að bæta við erfiðleikann
Til að draga úr meiðslum í nára er sniðugt að hita þig alltaf upp með því að hlaupa eða bara eitthvað sem hækkar líkamshitann. ef þú hefur meiðst áður er sniðugt að reyna að styrkja vöðvana í kring en ekki gera meira en 10% aukningu á erfiðleikann á viku. Ef þú færð verki ættir þú að hætta að bæta við erfiðleikann
Hnésbótarsin: Þegar þú meiðist í hnésbótarsininni finnur þú fyrir skyndilegum stingandi sársauka í fætinum og þú getur ekki haft fótinn beinan. Hnésbótarsinar meiðsli geta verið allt frá lítilli tognun og alveg upp í slit sem gæti tekið þig frá æfingum frá nokkrum mánuðum alveg upp í ár. Það eru margar leiðir til að meiðast í hnésbótarsininni en algengustu ástæðurnar eru, gera of mikið of hratt, ekki nógu vel upphitaður eða að vöðvarnir eru ekki nógu sterkir. Til þess að komast fyrr út að æfa er gott að hvíla vel í tvær til þrjár vikur og fara síðan að teygja rólega og byrja að vinna upp styrkinn í vöðvanum eins fljótt og hægt er. Til þess að koma í veg fyrir að svona gerist á alltaf að hita vel upp fyrir æfingar og teygja eftir þær. En eins og með öll meiðsli áttu að hætta þegar þú finnur til. "No pain No gain" hugtakið gildir ekki um meiðsli.
Hásin: Hásinin er stærsta og þykkasta sinin í líkamanum. hún liggur frá kálfavöðvunum í hælinn. Þegar hásinin slitnar getur hún annað hvort slitnað að hluta til eða alveg. Sinin meiðst oftast þegar þú ert að koma þér snögglega af stað, stöðva eða snúa. Flest meiðsli koma ef þú lendir illa en meiðsli í hásininni koma frekar þegar maður ýtir fast í jörðina. Það er ekki mikið sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir hásinarslit en það er sniðugt að hlaupa ekki mikið upp í móti og fá sér skó sem eru með góðan stuðning. Strákar eru samt fjórum sinnum líklegri að slíta hásinina. Endurhæfingartími slitnar hásinar getur verið allt að einu ári en það fer eftir hversu illa þú meiddist. Það er bæði hægt að fara í aðgerð og sleppa henni. Ef þú ferð í aðgerðina eru meiri líkur að þér batni til fulls.
Krossbönd: Slit á fremra krossbandi er með algengstu og alvarlegustu hnémeiðslum sem hægt er að lenda í. Í kjölfarið hefur hnémeiðslin mikil áhrif á daglegt líf einstaklinga í langan tíma eftir meiðslin jafnvel það sem eftir er ævinnar. Við þetta bætist sú staðreynd að auknar líkur eru á að greinast með slitgigt síðar á lífsleiðinni. Tíðni fremri krossbandaslita hér á landi er ekki þekkt og framskyggnar rannsóknir á því hvernig fólki farnast hvað varðar einkenni í hné, daglega færni og lífsgæði eru fáar. Þá hafa engar rannsóknir verið gerðar á því hvort auknar líkur séu á meiðslum í aftanlærisvöðvum eftir aðgerð á fremra krossbandi. Rannsóknir sýna að um 70% alvarlegra hnémeiðsla í íþróttum eigi sér stað án líkamlegrar snertingar frá andstæðingi. Hjá íþróttamönnum, þá sérstaklega þeim sem stunda íþróttir sem krefjast snöggra stefnubreytinga eins og knattspyrnu, handbolta og körfubolta eru krossbandaslit eitt algengasta tilfelli hnémeiðsla.
Heilahristingur: Heilahristingur kemur oftast þegar þú færð högg á höfuðið eða ef að líkaminn þinn hristist óvenju mikið. Það er mjög algengt fyrir íþróttamenn að fá vægan heilahristing en þá er gott að hvíla þig frá öllu sem reynir á heilann eins og lesa, skrifa, horfa á sjónvarpið og læra heima. Það er líka mælt með að fara til læknis sem sérhæfir sig í höfuðmeiðslum og fá hann til að líta á þetta og gá hversu alvarlegur heilahristingurinn er. Það er margt sem gefur til kynna að þú ert með heilahristing eins og ef að þér er óglatt, þú hefur höfuðverk eða ef að það er suð í eyrunum. Það er líka mikilvægt að taka eftir, ef að þú ert foreldri því sumir krakkar munu ekki segja frá ef þeim er illt í hausnum eða óglatt en ef þau eru með heilahristing er mikilvægt að fylgjast vel með. Ef að þau sýna einhverja óvenjulega hegðun eða eru mikið að detta og eiga erfitt með að tala og mynda setningar eru miklar líkur á að þau eru með heilahristing og þá er mikilvægt að fara með þau beint til læknis.
Það er erfitt að koma í veg fyrir heilahristing af því hann kemur svo skyndilega en það er alltaf hægt að vera með hjálma þegar þú ert að hjóla eða ert í amerískum fótbolta. En svo á maður alltaf að passa sig og reyna ekki eitthvað óraunhæft.
Það er erfitt að koma í veg fyrir heilahristing af því hann kemur svo skyndilega en það er alltaf hægt að vera með hjálma þegar þú ert að hjóla eða ert í amerískum fótbolta. En svo á maður alltaf að passa sig og reyna ekki eitthvað óraunhæft.
Ofreynsla og álagsmeiðsli: gerast þegar að íþróttamenn reyna of mikið á sig og gefa líkamanum ekki næga hvíld til að jafna sig eftir mikil átök og þannig getur það orðið að mjög alvarlegum meiðslum sem þú getur verið í marga mánuði að jafna þig frá. Álagsmeiðsli koma fram í mörgum formum og eru ekki bara staðsett á einum stað í líkamanum eins og mörg önnur meiðsli. Álagsmeiðsli stafa af of miklu álagi á vissa vöðva eða sinar sem leiðir til vefjaskaða og ef ekki er hætt þá eykst vefjaskaðinn þangað til að eitthvað slitnar og þá gætir þú þurft að vera frá í nokkra mánuði. Það er breytilegt hverjir verða fyrir álagsmeiðslum því kyn, aldur og þyngd hafa öll áhrif á álagsmeiðsli alveg eins og liðleiki og líkamsbygging. Það er samt hægt að losna við alla áhrifsþættina með réttu tækninni og góðri þjálfun. Nema auðvitað Aldur, Þyngd og kyn.